frá mér (Önnu Hrefnu)
Ýmsar tengingar
Bloggarar
Myndasöfn
Klukkan
03.12.2008 13:44:36 / annahrefnu

Ný bloggsíða

Ég er komin með nýja bloggsíðu og ætla að lokai þessari.  Slóðin er http://annahrefnu.eastartist.com   Velkomin þangað í heimsókn

» 18 hafa sagt sína skoðun

28.11.2008 10:21:31 / annahrefnu

Heimasíðan mín

Jæja þá er ég búin að afreka að uppfæra heimasíðuna mína http://www.ismennt.is/not/annahref og koma inn með síðustu stefnumótamyndina.  En getstur minn þar var Tinna dóttir mín.  Það vantar enn nokkrar nýjar myndir sem koma síðar.  Og myndirnar af dætrum mínum og barnabörnum eru ekki alveg nýjar.  En hvað gerir það til. Ekkert er fullkomið í þessum heimi.

» 18 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 17:24:09 / annahrefnu

Kambanesið á jólamarkað

Úti skín sólin glatt á snjóinn.  Ég hef verið að undirbúa að taka þátt í jólamarkaði hér á Stöðvarfirði.  Og ég hef einbeitt mér að myndgera Kambanesið að gamni mínu.  Hér gefur að líta síðustu afurðina sem ég var að ljúka við í morgun - málverk með acryl á striga - str. 30 x 40 og teikning og vatnslitur 9 x 13


Kambanesið


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 16:24:06 / annahrefnu

Tómar hirslur og gengið til fjalla

Í dag röltum við Garðar upp í fjallið hér fyrir ofan þorpið.  Við vorum að horfa eftir rjúpu en sáum enga.  Sáum hinsvegar á nokkrum stöðum ummerki eftir hana í snjónum.  Ég tók eins og gengur nokkrar myndir m.a. þessa hér fyrir neðan,  Þegar ég sá þetta blóm uppþornað með tóma fræbelgi datt mér í hug bankarnir á Íslandi.  Því að í minni sveit í gamla daga kölluðum við þetta blóm peningablóm en í bókum heiti það lokasjóður.  Við lékum okkur með að nota fræbelgina fyrir peninga.

Peningablómið visið og með allar hirslur sínar galopnar og tómar eins og íslensku bankarnir.


» 17 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 22:24:38 / annahrefnu

Er Fagridalur fagur?

Fagridalur er ekki alltaf öfugmæli.





» 20 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 20:19:27 / annahrefnu

Laugardagsbíltúr

Við skruppum í bíltúr suður á Strönd sem við köllum svo hér en það er Berufjarðarströndin í fyrradag.   Sólin - lágt á lofti - yfir Lónsfjöllunum varpaði ægifagurri birtu á fjallgarðana í suðri og Papeyna.  Sjáið myndir:


Komið fyrir Streitishvarfið


Séð inn Berufjörðinn frá Krossleitinu


Papeyjan alltaf á sama stað



Og Krossfossinn að mestu horfinn í klakabönd en restin fýkur upp í mót með vindinum


» 18 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 10:48:08 / annahrefnu

Stórt spurt

Nú er ég búin að vera hér fyirir austan í nokkra daga og hafa það mjög gott.  Hérna halla fjöllinn enn í vestur og mannlífið með líkum brag óg áður, þrátt fyrir allan hamaganginn í fjármálaheiminum.
Já fjármálin - þau er ég búin að hugsa mikið mu undanfarið. Hvernig heim við erum að búa til fyrir mannkynið.  Jörðin er rík og gæti brauðfætt okkur öll ef bara væri skipt jafnar.  Það voru gerðar nokkrar tilraunir til að skapa þjóðfélag jafnréttis og bræðralags á síðustu öld.  Þær hafa ekki tekist sem skyldi.  En þær komu mörgu góðu til leiðar líka fyrir okkur hin, því hin kapítalísku ríki voru öll hrædd við að ef ekki væri í einhverju gefið eftir fyrir kröfum almennings þá yrðu fleiri sósíalískar byltingar.  Kapítalisminn gengur líka út á neyslu og það, stöðugt vaxandi neyslu þar til yfir líkur og blaðran springur eins og núna.  Mér er spurn: Getum við lært af fyrri reynslu til að skapa jafnrétti á milli þegan þjóðfélagsins og verið hvert við annað eins og við viljum að aðrir séu við okkur?
Eða er mannkynið dæmt til að standa eilífan ólgusjó, sundrungar og stríða - þar til það hefur útrýmt sjálfu sér?
Ég veit að stórt er spurt - og enginn einn hefur svarið - en það er vert að hugleiða málið.

» 20 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 18:58:36 / annahrefnu

Niður með allar sýningar og aftur austur

Jæja nú er búið að tæma íþróttahúsið.  Búið að taka niður allar sýningar, þar á meðal mína.  En sýning þessi var eins og ég hef sagt hér áður í tilefni að afmæli sveitarfélagsins hér í Garðinum, nánar tiltekið 100 afmæli.  Það var gaman að vera með þó ekki seldist mikið.  Gaman að hitta fólk hér og kynnast því aðeins.  Og nú á ég aðeins eftir að ljúka einu verki á miðvikudaginn kemur.  Að því loknu fer ég rakleitt austur á Stöðvarfjörð. Það er Stöð í Stöð á Stöðvarfirði.

» 20 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 09:49:25 / annahrefnu

Upp og niður

Jæja þá er að fara að hengja upp fyrir helgina og taka niður á Mokka.  Ég er að fara að hengja upp hér í íþróttahúsinu í Garðinum.  Verð hér með á sýningu sem er haldin í tilefni að afmæli sveitarfélagsins.  Hún stendur föstudag, laugardag og sunnudag.  Ég verð þar með nokkrar myndir og kort sem ég krota í frístundum og við öll möguleg tækifæri.  Ég halkka til að kynnast Garðbúun meira í gegnum það.  Ég fór að skoða byggðasafnið hérna og varð mjög hrifin af því.  Þetta er fyrsta byggðasafnið (fyrir utan kannski þjóðminjasafnið) sem sýnir allt sviðið, ekki bara atvinnusöguna.  Það sýnir líka heimilin, skólann og allt.   Og það er alveg gullnáma fyrir vélaáhugamenn. Mæli með að þeir sem ferðast hér um líti á það.  Svo er þar í sama húsi kaffihús með æðislegu útsýni yfir Faxaflóann og í næsta húsi er handverks og listmunamarkaður.  Og ekki spillir fyrir Garðskagafjaran.  Feikinamikil sandfjara við vitann.  Það er fallegt hérna í Garðinum þó flatt sé.  Það eina sem mér finnst þreytandi er þessi eilífi vindsteitingur.  En ég er samt að reyna að selja, ef einhver vill kaupa. 

» 21 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 13:16:35 / annahrefnu

Nýr jólasöngur

Markaðssveinar einn og átta,
ofan komu af fjöllunum,
í fyrrakvöld þeir fóru að hátta,
fundu ei fé á völlunum.
Geir hann stóð þar utan gátta, 
það átti að færa hann tröllunum.
Þá var hringt í Seðlabanka
Öllum sauðabjöllunum.

Mér datt þetta sísvona í hug í morgun


» 22 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 01:26:19 / annahrefnu

"Þetta er Anna Hrefnu"

Jæja þá er ég búin að hengja upp á Mokka.  Sýningin er semsagt opin frá kl. 9 á morgnana til kl. 7 á kvöldin (eins og kaffhúsið) og er frá morgundeginum,27. sept. til 15 okt.  Yfirskrift hennar er: "Þetta er Anna Hrefnu"
Þar gefur að líta sjálfsmyndir í málverkum, teikningum og ljóðum.   Í þessum verkum opna ég fyrir sjálfri mér og mér birtist ókunnug kona, en þó svo kunnug.  Mitt innra kemur fram - líka það sem ég þekki ekki.  Og skilningur minn vex á sjálfri mér og á öðrum um leið. 
 
Vona að sem flestir kíki við.

Hér er ein af myndunum:


» 18 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 20:55:05 / annahrefnu

Sýning á Mokka

Bara að láta ykkur vita að ég verð með sýningu á Mokka Skólavörðustíg 27. sept. til 15. október.  Kannski verða fleiri sýningar framundan.  Það er ýmislegt í deiglunni.  Út og suður hefur komið ýmsu í gang.  Góð auglýsing það, þökk sé Gísla Einarssyni og Frey myndatökumanni. Frábærrt tím.

» 21 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 21:01:09 / annahrefnu

"Út og suður"

Jæja, það tókst!  Að verða mér ekki til skammar í "Út og suður" á sunnudaginn var,  En það er nú mest að þakka þeim sem gerðu þáttinn - klipptu og röðuðu saman brotunum.  Ég var bara þarna og reyndi að gera sem best það sem til var ætlast af mér. Þetta var skemmtileg reynsla, ekki síst var skemmtilegt hve margir létu í sér heyra um hvað þeim fannst um þáttinn, bæði kunnugir og ókunnugir bæði hér á blogginu og í tölvupósti og einnig í síma.  Frábært.

» 20 hafa sagt sína skoðun

06.09.2008 17:16:38 / annahrefnu

Komin suður - Út og suður

Já jógavikan var frábær í alla staði.  Kennslan, maturinn, fjallið, móinn, fjaran og sjórinn og veðrið - allt þetta lék við hvern sinn fingur.  Og Búlandstindurinn gnæfði yfir allt saman með sinni sterku nærveru.  Ég hef ekkert bloggað lengi vegna annríkis við annað.  En nú er ég komin suður í Garðinn og Daníel og Sólrún eru hérna hjá mér því mamma þeirra er í útlöndum.
Eitt af því sem ég hef verið upptekin af alveg óvænt er að vera gestur í þættinum Út og suður hjá Gísla Einarssyni.  Hann verður sýndur sunnudaginn eftir viku þ.e. 14.9.  Það var skemmtileg og nýstárleg reynsla.  Ég er með dálítið fiðrildi í magnum yfir hvernig til hefur tekist og spennt að sjá afurðina en hugga mig við að fagmennirnir geri eins gott úr og mögulegt er  
Bless og "sjáumst" næsta sunnudagskvöld!

» 36 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 17:33:28 / annahrefnu

Hverf í viku

Ég er að fara burt í viku.  Hverfa á vit mosagróinna kletta á fornum slóðum.  Nánar tiltekið í Hamraborg Berufirði að stunda jóga og íhugun o.fl. skemmtilegt.  Slökkt verður á gsm símanum og ekkert sjónvarp, útvarp né dagblöð í heila viku.  Frábært.. 
Hér er slóð á upplýsingar ef einhver er forvitin/nn um námskeiðið:  http://www.kristinsjofn.is/content/view/27/27/
Bless á meðan.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 22992
RSS tengill